Þá erum við komin á fullt með vinnslu heimasíðunnar með dyggri aðstoð Egils. Allar ábendingar um efnistök eru vel þegnar og má koma þeim til mín á póstfangið larus@toska.is Vonandi verður þetta okkur öllum til ánægju.
Bestu kveðjur. Lárus Sighvatsson.










Sæll kæri frændi og allt frændfólk.
Kærar þakkir fyrir þetta skemmtilega framtak. Vonandi verður nú okkar fólk ekki feimið við að láta ljós sitt skína á þessari síðu fram að ættarmóti.
Það verður gaman þegar við hittumst öll í sumar.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.
Sóla, Bonga, Bíbí, Bilda, þetta eru allt frænkur þínar sem þú hittir í sumar, sagði ég við elskulega dóttur mína hana Birnu á dögunum.
Þetta eru skrítin nöfn sagði hún að bragði. Þá sagði ég, en Birna mín þú átt líka frænku sem er kölluð Sísí, er það ekkert skrítið?. Það er ekkert skrítið pabbi, það er venjulegt nafn sagði Birna að bragði. Ég sleppti því að segja henni að hún ætti frænda sem stundum væri kallaður Bútti.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.
Sæl öll.
Mér líst vel á þetta vefsíðuframtak hjá ykkur.
Torfuneskveðjur.
Bilda.
Fín síða og ég bíð spenntur eftir mótinu, það verður bara gaman.
Kalli minn það er nú ekkert skrítið að Birna botni ekkert í þessum nöfnum, það er nú bara stutt síðan að ég komst að því að þetta eru bara gælunöfn
Frábært framtak hjá ykkur feðgar!
Fylgist spennt með nýjustu fréttum.
Kær kveðja úr Brekkulandinu.
Sæl verið þið og takk fyrir þau viðbrögð sem komin eru við þessu dundi mínu. Ég er að setja inn tengla á blogg og heimasíður og þætti gott ef þið bentuð mér á fleiri ef þið hafið vitneskju um. Kær kveðja. Lárus Sighvatsson
Já þetta er flott framtak! Örugglega fyrsta “interaktív” ættarmótið sem sögur fara af hehe…
Kveðjur frá DK – Hlökkum til að sjá ykkur í sumar!
Mikið er gaman að þessu framtaki ykkar að opna þessa síðu.
Ég sendi ykkur bráðlega gamlar myndir af ömmu og afa og eina af nefndarkonunni Sigrúnu frá því að hún var lítil.
Bestu kveðjur frá Gerði Lár sem getur ekki bloggað.
Takk fyrir góðar kveðjur. Ef maður getur ekki bloggað þá fær maður bara aðstoð frá góðu fólki. Frábært ef þið eigið skemmtilegar myndir í tölvutæku formi sem þið getið sent til mín. Það má geta þess að flestar myndir sem komnar eru eru frá Kalla. Takk fyrir það. Kv. Lárus S.
Sæl verið þið.
Eins og sést á heimasiðu Torfuness þá hefur ekkert gerst þar í tæpt ár:-( Þetta stafar af því að það er verið að endurnýja síðuna og verður hún vonandi tilbúin nú í maí.
Torfuneskveðjur.
Bilda.
Frábært framtak hjá ykkur feðgar.
Gaman að sjá gömlu myndirnar.Hlakka til að sjá ykkur í sumar.
Kveðja af Skaganum..
Þóranna…
Kæru frændur, þið sem eruð svo framtakssamir og duglegir að koma þessari síðu á laggirnar.
Ég skora á ykkur að senda tölvupóst á frændfólk okkar og hvetja til frekari þátttöku á þessari einstaklega skemmtilegu heimasíðu. Þeim mun skemmtilegri verður hún. Auðvitað þikist ég samt vita að flestir viti af henni.
Nú er árið 2008 og allir með tölvur, þær eru jú orðnar svo stór partur af öllu okkar samfélagi. Nú er bara skella sér á ritvöllin og taka þátt og jafnvel senda inn myndir kæra frændfólk. Það er ekkert að óttast, látið mig þekkja það.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.
P.s. Ég fékk meira að segja mömmu til að taka þátt.
Úps!!! Það átti að standa Kalli Tomm undir síðustu færslu en ekki Gerður Lár. Ég gleymdi að breyta því eftir að ég setti inn athugasemd fyrir mömmu á dögunum.
Bestu kveðjur úr Mosó.
Já Kalli minn og öll hin. Tek undir með þér að gaman væri að fleiri létu ljós sitt skína og kannski ef við sem vitum af síðunni látum slóðina ganga þá kæmu fleir með í fjörið. LS
Sæl öll kæra frændfólk!
Skemmtileg síða, frábært framtak. Alltaf gaman að skoða gamlar myndir.
Spennandi verður að fá fréttir.
Sjáumst hress í sumar.;o)
Bestu kveðjur frá Þórgunni (Dússí)
Sæl öll
Glæsilegt framtak þessi heimasíða og gaman að sjá gömlu myndirnar af ömmu og afa og fleira fólki í ættinni.
Bestu kveðjur frá Ingu Ragnars Lárussonar
Kári Ragnarsson (13:43:13) :
Nú held ég að ég sé að fatta hvar maður á að skrifa, svo sem flestir lesi þetta!
Sælt veri fólkið. Mig langar að óska okkur öllum til hamingju með síðuna, og þeim sem hafa lagt til vinnu og tíma kærar þakkir, ég elska ykkur öll!!!
Það er frábært að skoða allar þessar myndir, bæði gamlar og nýjar.
Þar sem ég verð ekki á klakanum í sumar langar mig að óska ykkur góðs sumars og súper ættarmóts, ég verð með ykkur í huganum og hlakka til að sjá myndir þar frá síðar. Við jarðarför pabba lenti ég á spjalli ( man ekki við hvern – já maður er kominn á þennan aldur ) minnir að þessi drengur við töluðum um var barnabarn Bíbíar ) sem býr við Ringköbing i Danmörku, sem er bær sem ég vinn í og fékk ég hans símanúmer og addressu, en ég finn ekki þetta blað!! Vona að einhver geti hjálpað mér að grafa þennan frænda fram. Jæja kæra frændfólk, læt þetta duga í bili, bestu kveðjur úr Danaveldi.
Kári Ragnarsson
Minervavej 55
6960 Hvide Sande
Danmörk
+45 96591600
+45 61851600 (gsm)
krspurs@gmail.com
kari@nbtegnestuen.dk
Sæll Kári minn. Gaman að þú skulir vera með okkur í anda þó skemmtilegra hefði verið að hafa þig með um næstu helgi. Ég held að frændinn sem þú ert að tala um sér Tómas Sturlaugsson j.r sonur Stulla hennar Gerðar Lár. Hann bjó í Ulvborg en er nú fluttur eitthvað annað en ég fékk símann hans hjá Gerði og er síminn hjá honum 28576009. Það væri gaman fyrir ykkur að komast í samband. Svo er Sighvatur sonur Halldórs bróður einnig þarna i Danaveldi í námi í Kolding en hann er staddur hér um þessar mundir. Ég gæti komið þér í samband við hann líka þannig að þið gætuð haldið smá ættarmót næsta vetur. Bestu kveðjur. Lárus Sighv.
Sæll Lárus! 1000 þakkir fyrir þetta, ég slæ á þráðinn til hans
Vonandi gekk allt vel á ættarmótinu, frábært að skoða myndirnar af mínu fólki saman 

Úr danmörku er allt gott að frétta, veðrið búið að vera ok og vorum við bara heima í Hvide Sande í ár, en bærinn er á vinsælu svæði sumarhúsa við vesturströndina!! Endilega kíktu á http://www.hvidesande.dk
Jæja frændi, bið að heilsa þínu fólki og öllum hinum líka
Hilsen Kári Ragnarsson