Gott fólk. Nú getum við farið að telja niður því eftir rúmar sjö vikur hefst fjörið á Hvammstanga. Við í nefndinni höfum nú fengið staðfesta þáttöku frá Möggu, Bongu, Didda og Tomma leggjum. Hinir verða að fara að drífa sig með þáttökufjöldann. Við reiknum með að verða milli 120 og 130. Það er margt hægt að gera á Hvammstanga og nágrenni. Þeir sem ekki hafa ekið fyrir Vatnsnesið ættu að skoða þann möguleika því þar eru fallegir staðir til að skoða s.s. í Hindisvík (sellátur) og Hvítserkur. Á þeirri leið er líka ekið framhjá bænum Stöpum en þar liggja rætur okkar að hluta til. Látið svo ykkar hugmyndir í ljós hér um hvað sem er varðandi ættarmótið. Enn er ég að skanna myndir og bæta á myndasíðuna svo vonandi tekst mér að koma inn myndum af sem flestum úr þessum frábæra hópi.
Ekki fleira í bili en kórfólk ætti að fara að hita upp raddirnar.
Kær kveðja til ykkar allra.
Ritstjórinn.









