Sæl öll og takk fyrir góðar undirtektir við síðunni. Ég komst í feitt hjá Bíbí og er að skanna inn gamlar góðar myndir sem ég vona að þið hafið gaman af. Ef þið lumið á skemmtilegum myndum þá endilega komið þeim til mín á einhvern hátt svo ég geti bætt við. Ég tek undir með Kalla, endilega látið í ykkur heyra hér með hvað sem er. Bestu kveðjur. Lárus Sighvatsson










Mikið er gaman að sjá allar þessu gömlu myndir. Nú notar maður óspart tækifærið og reynir að næla sér í þær.
Takk fyrir þetta.
Bestu kveðjur úr Mosó frá Kalla Tomm.
Sammála, það er alveg frábært að sjá þessar myndir og gott fyrir söguna að hafa nöfn fólks og staða.
Kveðjur úr Grafarvogi
Halli
Já, það leynast ýmis gullkorn hjá Mosfellstaðarkyninu. Til upplýsingar, þá er myndin af mömmu og Ragnari tekin fyrir utan félagsheimiliseldhúsgluggann í Skjólbrekku. Ég man eftir úlpunni hennar mömmu og þessum ótrúlega mikla töffara, sem var móðurbróðir minn.
Ef þið skoðið myndina af mömmu, Teiti og Bíbí frá síðasta ættarmóti, sjáið þið, að hökusvipurinn er ekki ýkja fjölbreyttur!
Kveðjur af stór-Klappakórssvæðinu
Sælt veri fólkið. Mig langar að óska okkur öllum til hamingju með síðuna, og þeim sem hafa lagt til vinnu og tíma kærar þakkir, ég elska ykkur öll!!!
minnir að þetta var barnabarn Bíbíar ) um frænda sem býr við Ringköbing i Danmörku, sem er bær sem ég vinn í og fékk ég hans símanúmer og addressu, en ég finn ekki þetta blað!! Vona að einhver geti hjálpað mér að grafa þennan frænda fram. Jæja kæra frændfólk, læt þetta duga í bili, bestu kveðjur úr Danaveldi.
Það er frábært að skoða allar þessar myndir, bæði gamlar og nýjar.
Þar sem ég verð ekki á klakanum í sumar langar mig að óska ykkur góðs sumars og súper ættarmóts, ég verð með ykkur í huganum og hlakka til að sjá myndir þar frá síðar. Við jarðarför pabba lenti ég á spjalli ( man ekki við hvern – já maður er kominn á þennan aldur
Kári Ragnarsson
Minervavej 55
6960 Hvide Sande
Danmörk
+45 96591600
+45 61851600 (gsm)
krspurs@gmail.com
kari@nbtegnestuen.dk