Gott fólk. Nú getum við farið að telja niður því eftir rúmar sjö vikur hefst fjörið á Hvammstanga. Við í nefndinni höfum nú fengið staðfesta þáttöku frá Möggu, Bongu, Didda og Tomma leggjum. Hinir verða að fara að drífa sig með þáttökufjöldann. Við reiknum með að verða milli 120 og 130. Það er margt hægt að gera á Hvammstanga og nágrenni. Þeir sem ekki hafa ekið fyrir Vatnsnesið ættu að skoða þann möguleika því þar eru fallegir staðir til að skoða s.s. í Hindisvík (sellátur) og Hvítserkur. Á þeirri leið er líka ekið framhjá bænum Stöpum en þar liggja rætur okkar að hluta til. Látið svo ykkar hugmyndir í ljós hér um hvað sem er varðandi ættarmótið. Enn er ég að skanna myndir og bæta á myndasíðuna svo vonandi tekst mér að koma inn myndum af sem flestum úr þessum frábæra hópi.
Ekki fleira í bili en kórfólk ætti að fara að hita upp raddirnar.
Kær kveðja til ykkar allra.
Ritstjórinn.










Já það var eins og við manninn mælt, Stulli meldaði í hvelli tæplega 30manns frá Gerði þannig að nú nálgums við hundraðið. Koma svo hinir ! Ég er viss um að það verður fjör á Tanganum og þetta ættarmót verður lengi í minnum haft.
Sko ! Allt að gerast. Bíbí og co melda tæplega 30 svo þetta stefnir í rosa stuð.
Sælt veri fólkið.
Það er ótrúlega gaman að sjá allar þessar myndir:-)
Torfuneskveðjur.
Bilda.
Stemning á þessum bæ!
Okkur er farið að hlakka mikið til að koma í sumar, tala nú ekki um að fara í bústaðinn eftir hva’ rúmar 2 vikur!
Veðrið hérna er búið að slá met frá síðustu öld og vonumst við til að geta komið með það heim á klakann í endaðan júní.
Vi ses!
Sighvatur og Sunna…