Tíðindi frá nefndinni

12 06 2008

Sælt veri fólkið.

Nefndin hittist í gær hjá Ágústi Tómassyni og fór yfir málin. Það stefnir í frábæra mætingu og erum við þegar með tæplega 150 skráða þátttakendur. Við munum nú senda frá okkur innheimtutilkynningar og biðjum ykkur að bregðast vel við. Við ákváðum að hafa smá mótsgjald til að mæta ýmsum kostnaði sem óhjákvæmilega hlýst af svona umstangi. Nú styttist í þetta mót okkar og við erum viss um að það verður bara gaman. Ég hef nú komið upp dálaglegu myndasafni og vil ég þakka þeim sem veittu mér aðstoð við það. Nú síðast sendi Bilda mér skemmtilegar myndir sem ég var að skella inn. Ef þið eigið myndir sem þið viljið senda mér þá endilega gerið það og þá í jpg. formi. Látið svo í ykkur heyra ef þið hafið einhverjar uppástungur varðandi þetta ættarmót okkar og þeir sem enn eru eitthvað að velkjast í vafa um hvort þeir mæti þá er bara að drífa sig og ská sig hjá Huldu eða Sólu. Þetta verður rosalega gaman. Sjáumst hress og kát. Ritstjórinn.