Þá hef ég komið inn töluvert af nýjum myndum frá ættarmótinu á Hvammstanga. Svo er rétt að kynna hér á síðunni næstu nefnd sem skipuð er einvalaliði eða þeim Katrínu Tómasdóttur, Lárusi Halldórssyni, Karli Tómassyni, Guðbjörgu Magnúsdóttur og Halldóri Stefánssyni. Ég óska þeim alls hins besta við undirbúning að næsta móti. LS
Fleiri myndir og nýja nefndin
28 07 2008Ummæli : 1 ummæli »
Flokkar : Uncategorized
Að loknu ættarmóti.
22 07 2008Kæra frændfólk og makar. Þá er lokið þessum leik og vil ég þakka öllum sem þátt tóku kærlega fyrir samveruna. Sérstaklega þakka ég þeim sem voru með mér í nefndinni fyrir alla góðu samverustundirnar við undirbúninginn svo og öllum þeim sem aðstoðuðu okkur á einn eða annan hátt við að gera þetta sem best úr garði. Ég mun fljótlega setja hér inn fullt af myndum og einnig verða birtir hér vísubotnar og eitthvað fleira frá mótinu. Svo óska ég næstu nefnd alls hins besta við undirbúning fyrir næsta mót. Bestu kveðjur. Lárus Sighvatsson
Ummæli : 11 ummæli »
Flokkar : Uncategorized
Allt orðið klárt.
16 07 2008Kæra frændfólk og makar. Þá er að bresta á með ættarmóti. Nefndin hefur gert sitt besta til þess að þetta verði eins og best verður á kosið. Veðurútlit er gott en rétt er að minna alla á að hafa með sér hlý föt til að vera við öllu búin. Í gærkvöldi átti söngfélagið skemmtilega stund í kjallaranum á Brúarlandi. Það var skemmtileg tilfinning að koma þar saman og upplifa smá Brúarlandsstemmningu. Svo óska ég öllum sem mæta góðrar ferðar og þess að við eigum skemmtileg ættarmót. Sjáumst hress og kát. Lárus Sighvatsson.
Ummæli : 4 ummæli »
Flokkar : Uncategorized
Nýr “linkur” Dvergó
9 07 2008Var að bæta inn tengli á síður sem er í umsjá Örnu Steinarsdóttur. Kíkið á hann. Nú styttist óðum í ættarmótið og allt orðið klárt. Muna bara eftir að senda inn greiðslurnar þeir sem eiga eftir að gera það. Sjáumst svo bara hress og kát á Hvammstanga.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Uncategorized
Enn styttist í fjörið.
2 07 2008Gott frændfólk.
Þá líður senn að ættarmótinu okkar. Mæting verður góð og verður gaman að hitta ykkur öll. Minni á að þið drífið í að senda greiðslu inn á reikning mótsins. Staðarhaldarinn okkar á Hvammstanga er alveg frábær og reddar öllu sem við biðjum um. Svo nú er bara að vona að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir. Það er mikið um að vera á Hvammstanga þessa helgi svo að engum á að leiðasta eina einustu mínútum og svo erum við jú öll alveg einstök. Bendi að lokum á að nýja heimasíðan hjá Bildu og Baldvin er komin í loftið.
Bestu kveðjur, Lárus Sighvatsson.
Ummæli : Leave a Comment »
Flokkar : Uncategorized








