Kæra frændfólk og makar. Þá er lokið þessum leik og vil ég þakka öllum sem þátt tóku kærlega fyrir samveruna. Sérstaklega þakka ég þeim sem voru með mér í nefndinni fyrir alla góðu samverustundirnar við undirbúninginn svo og öllum þeim sem aðstoðuðu okkur á einn eða annan hátt við að gera þetta sem best úr garði. Ég mun fljótlega setja hér inn fullt af myndum og einnig verða birtir hér vísubotnar og eitthvað fleira frá mótinu. Svo óska ég næstu nefnd alls hins besta við undirbúning fyrir næsta mót. Bestu kveðjur. Lárus Sighvatsson










Elsku frændi og Ásta mín! Takk fyrir yndislega helgi. Ásta þú ert frábær það má með sanni segja að þú hafir heldur betur lagt þit af mörkum til þess að gera þetta ættarmót okkar svona skemmtilegt.Hugmyndaflug þitt hvað varðar leikina er metið að verðleikum. Nú Lárus minn þú átt heiður skilinn fyrir alla þína vinnu. Að stofna þessa síðu var og er ómetanlegt. Þakkir til Egils fyrir sitt framlag kveðja til ykkar allra. Xo Xo Tjúmma
Guð minn góður nú finna Hulda Sóla og Ágúst fyrir rosalegri höfun! Ekki gera það elskurnar þetta er allt að koma hjá mér,ég er aldeilis ekki að gleyma ykkur…….Það var mjög gaman að starfa með ykkur í nefndinni og þið lögðuð mikla vinnu á ykkur, þið eruð bara skemmtileg!! Maður þarf eiginlega að fá áfallahjálp…hvað með ykkur? Sóla hafa þeir hjá Hollywood ekkert haft samband enn? Þú ert svo dæmalaust góð á sviði! Takk elskurnar og kveðja til allra í ættinni fyrir ógleymanlega helgi. Xo Xo Tjúmma.
Takk Sigrún mín. Þín ræða var líka eitt snilldarverk og mikið var hlegið. Það er spurning hvort við ættum að setja á laggirnar umboðsskrifstofu skemmtikrafta. Lárus Sighv.
Ættarmótsnefnd,frændfólk og fjölskyldur.
Ég vil þakka fyrir skemmtilegar samverustundir um helgina. Þetta var allt frábærlega vel heppnað og ekki skemmdi veðrið.Nefndin fær sérstakar þakkir fyrir.
Kveðja Þóranna og fjölskylda.
Takk sömuleiðis fyrir allt, elsku frændfólkið mitt. Þetta hefur bara allt verið frábært. Kjartan kokkurinn okkar sagði mér að hann hefði aldrei verið á svona skemmtilegu ættarmóti!!! Viðurkenni, að ég hef eytt dálitlum tíma í svefn, síðan ég kom heim, enda ekki ástæða til að eyða tímanum í slíkt um helgina.
Besti kveðjur og þakkir aftur og enn.
Áfram Brúarlandsfólkið!!!
Miss Hollywood
Sæl veri ættarmótsnefnd og annað Brúarlandsfólk. Þakka ykkur frábæra samveru og skemmtun um liðna helgi.
Þakka nefndinni góða stjórn þó hún hefði mátt vera fjölmennari í morgunleikfiminni á laugardeginum!
Kveðja Hliðarlína
Elskulega frændfólk og allir á ættarmótinu. Þetta var einstaklega skemmtileg helgi og þið í undirbúningsnefndinni eigið heiður skilið fyrir frábæran undirbúning.
Lárus og Ásta þessi heimasíða er einnig lofsvert framtak.
Stundin í kirkjugarðinum, Fjölskylduleikurinn og allt spjallið við ættingja og vini, Ræða Tomma, Sigrúnar, Sóla frábær í veislustjórninni, ættarkórinn og hljómsveit Stokkseyrabræðra allt var þetta svo magnað og nánast því fyrir mig of stór pakki svona allt í einu.
Öllu þessu lukum við svo með söng fram undir morgun og allir ljómuðu.
Kærar þakkir og til hamingju öll. Sjáumst hress.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm, Línu, Óla, Erlu og Birnu.
Sæl verið þið öll.
Ég tek undir með þeim sem hafa tjáð sig hér á undan og þakka fyrir helgina. Hugmyndin um að síðan lifi áfram á einhvern hátt, eins og Lárus talaði um, finnst mér ansi góð.
Torfuneskveðjur.
Bilda.
Kæra Brúarlandsfólk,
takk fyrir frábærar samverustundir á ættarmótinu, allt var þetta yndislegt, samvistir, ræður, söngur o.s.fr..
Bestu kveðjur frá mér og mínum
Hallinn
Takk kærlega fyrir frábært ættarmót!
Bestu kveðjur,
Þráinn Árni, Berglind og Elísabet
Es. Glæsilegt að enda dagskrá lau. á góðu rokki!!!
Takk fyrir góðar kveðjur. Nú er ég búinn að skella inn mörgum myndum sem ég fékk úr myndasafni Didda og Úllu og kann ég þeim bestu þakkir fyrir. Ég verð að biðja um hjálp við að þekkja fólkið sem ég hef merkt með ?. Næst koma svo myndir af nýliðnum ættarmóti. Bendi ykkur líka á að Kalli Tomm er með góðan myndapakka á síðunni sinni. Bestu kveðjur. Lárus Sighv.