Ættarmót okkar Brúarlandsfólksins verður haldið á Hvammstanga dagna 18. til 20. júlí n.k. Við höfum gert samning við staðarhaldara um að hafa til afnota stóran hluta af tjaldsvæði þeirra í Kirkjuhvammi og sal í aðstöðuhúsi höfum við til einkanota allan tímann. Þá erum við með félagsheimilið á Hvammstanga á leigu og þar munum við hafa sameiginlega kvöldmáltíð og skemmtun á laugardeginum. Við erum að vonast eftir góðri mætingu og reyndar bendir allt til þess að svo verði. Nánari dagskrá mótsins verður birt hér innan tíðar og einnig send tengiliðum til dreifingar.










Flott hjá ykkur, til hamingju með þetta og takk fyrir. Hvað er að frétta af mótinu verður ekki góð þátttaka ? Við hlökkum mikið til á mínum bæ.